Tilgangur áhugamálsins um heimspeki er að vera vettvangur umræðu um
heimspeki og allt sem heimspeki tengist, fyrst og fremst áhugafólki um heimspeki til ánægju og yndisauka og til þess að við getum öll lært hvert af öðru. Vonast er eftir opinni en kurteisri umræðu þar sem þátttakendur umgangast hver annan af virðingu og tillitsemi.
Þátttaka undir skjánafni á huga.is er til þess að þátttakendur geti tekið þátt, sent inn fyrirspurnir, svarað eða viðrað hugmyndir með opnari huga en mögulegt væri undir nafni.
Skjánöfnin veita ekki leyfi til hegðunar sem er særandi eða á einhvern hátt neikvæð fyrir framgang umræðunnar.
Stjórnendur áhugamálsins hafa rétt til að eyða út hverju því efni sem ekki er metið falla að tilgangi áhugamálsins.