Það er líka hægt að gera hjá Sjálfstæðisflokknum. Hver segir að það sé ekki hægt? Það hefur meira að segja komið fyrir að eftir fundi þingflokksins hefur Davíð farið og talað fyrir stefnu flokksins þó svo að það sé kannski ekki hans persónulega skoðun heldur vegna þess að meirihluti flokksins vill það. Munurinn er sá að Sjálfstæðisflokkurinn hefur raunhæfa stefnu og þess vegna gengur fólk í flokkinn, vegna þess að það er sammála stefnunni, þá þarf voðalega lítið að gagnrýna hana. Flokkurinn kemur sér svo saman um það hvað nákvæmlega þeir ætla að segja og gera ÁÐUR en þeir fara að gera það í stað þess að segja allir sitthvorn hlutinn í fjölmiðlum.
Nú er kominn tími til þess að fólk hætti að trúa öllu sem önugir vinstrimenn, sem öfunda Sjálfstæðisflokkinn af leiðtoga, sínum segja.