hér er grein úr mbl.is þann 23/02 2002 “Svo virðist sem nýjustu afurð Apple-fyrirtækisins, iMac-tölvunni, sé vel tekið meðal tölvunotenda, ef marka má viðbrögð á vefsvæðinu amazon.com. Tölvan, sem fór í sölu 13. febrúar, seldist upp á innan við fjórum klukkustundum. Amazon segir að aldrei fyrr hafi tölva fengið jafngóðar viðtökur, en 10 af 25 vinsælustu far- og borðtölvum sem eru til sölu á vefsvæðinu eru frá Apple. Ekki er loku fyrir það skotið að Apple muni selja um 1,3 milljónir iMac á...