Áttum að gera drauga- og- eða- sakamálasögu. Þetta var “hópverkefni”, þið vitið öll hvernig þau enda. Fyrsta, held ég, fyrstu persónu sagan mín. Veit ekki alveg hvað ég ætlaði í fyrstu með hana. Það er soldið asnalegt að nota ensk nöfn, já, en það er ástæða fyrir því að ég gerði það. Að mínu mati er þessi saga léleg vannabí (*eiginlegaspoiler*) útgáfa af Shutter Island. (og ef að þið ætlið að lesa hana upp einhvern tíman, ekki ruglast á frakki og krakki) — Hæ. Adrian heiti ég, kallaður Ali...