Mac og final cut eru “industry standard” hérna heima,
Mac eru áreiðanlegri tölvur, mikið meira “stable” …þú ert ekki að berjast við hana í hálfann sólahring eftir að þú kaupir hana til að stylla hana eins og þú villt hafa hana og innstalla öllu óþolandi lengi, og þarft svo að restarta áttaþúsund sinnum á meðan því ferli stendur yfir..plús allir þessir helvítis vírusar, spyware, popups og hvað þetta allt heytir…hef ekki þurft að hugsa um þetta dót í 2 ár…ekki nema þegar ég þarf að fara inní gömlu tölvuna mína og ná í eithvað þar, tónlist eða eithvað dót…
final cut studio pakkinn vinnur allur saman, ef þú ert að klippa vídeó sem þig langar að gera einhvern töff title í þá einfaldlega einangrarðu klippuna sem þú ættlar að vinna með og sendir hana yfir í motion, sendir hana svo til baka inn í final cut-inn, sama með soundtrack pro, live-type… veit að adope forritin gera þetta líka að einhverju leiti en ekki eins easy ennþá…plús að adobe forritin virka öll í mac…skylst að premiere-inn sé kominn á mac líka núna svo að það er mikill plús fyrir premiere menn…fá sér bara 2takka mús þá er þetta nánast enginn munur…
það að final cut sé “industry standard” þíðir að þú getur nánast labbað inní hvaða klippi svítu sem er og byrjað að vinna þar, í staðinn fyrir að eiða hálfum degi í að læra á nýtt forrit…oftast sem tíminn býður ekki uppá það í þessum bransa…
apple framleiðir apple vörur fyrir apple tölvur, ekki eithvað fyrirtæki sem hannar eithvað á svona PC vél, svo kaupir einhver það og sjitt, útaf því að hann er með svona chipset í vélinni sinni en samt glænýa vél þá getur hann ekki keyrt það…(gerðist fyrir mig með adope premiere pro pakkann á sínum tíma)
Fleirri fyrirtæki framleiða Plug-ina fyrir final cut en premiere pro eða avid
ég var lengi adope premiere maður…svo var ég ráðinn á auglýsingastofu sem voru eingöngu með makka og ég í 2 mánuði HATAÐI ég það…svo smá saman lærði ég að ELSKA makkann… núna vill ég ekki sjá annað og skyl ekkert í fólki sem er enn að hjakkast í PC-unum… það er actually hálf hlegið að fólki innan bransans sem notar PC…en auðvitað geturðu vel klippt allt sem þig langar að klippa á PC, ég er lítill Avid maður, hef aldrei unnið í alvöru avid svítu, bara profað litlu útgáfurnar sem hægt er að kaupa (alvöru Avid svita kostar miljónir en avid express og hin útgáfan er ekki alvöru Avid…diet avid) og ekki líkað mikið…enda allt öðruvísi viðmót…
en þegar öllu er á botninn hvolft þá er þetta bara spurning um persónulegt álit, hvað henntar þér, hvað líkar þér best við…